Lára Hanna Einarsdóttir þjóðfélagsrýnir telur einsýnt að Ólafur Ragnar dragi framboð sitt til forseta til baka vegna þeirra upplýsinga sem fram hafi komið um eignir fjölskyldu Dorritar, eiginkonu Ólafs, í aflandsfélögum. Ýmsir hafa tjáð sig um stöðu forsetans og telur Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri að málið veiki framboðsbaráttu Ólafs.
Í Kjarnanum kemur fram að í ársreikningum Moussaieff Jewellers Limited, sem skilað var til fyrirtækjaskráar í Bretlandi, sé svart á hvítu að Lasca Finance fái greiddar umtalsverðar fjárhæðir í vexti á hverju ári (e. interest receivable), sem gefi til kynna að Lasca hafi lánað fé. Samanlögð fjárhæð þeirra vaxta sem Lasca átti að fá greitt frá árinu 2000 til 2005 er tæplega sjö milljónir punda. Á gengi dagsins í dag er sú upphæð jafnvirði 1.262 milljónum íslenskra króna.
Á árinu 2005 seldi Moussaieff Jewellers Ltd. tíu prósent hlut sinn í Lasca Finance. Samkvæmt ársreikningi Moussaieff Jewellers Limited voru kaupendurnir S. Moussaieff og „Mrs.\" Moussaieff. Kaupverðið var 375 þúsund pund, eða 68 milljónir íslenskra króna. Eftir þann tíma er félagið ekki lengur skráð í bókum Moussaieff Jewellers Limited.
Jóhannes Björn, höfundur bókarinnar Falið vald, bendir á að þar sem vaxtagreiðslur til fyrirtækisins hafi numið 1,2 milljörðum kr. á fimm ára tímabili þýði það að fyrirtækið lánaði eða bjó til skuldir upp á meira en tífalda þá upphæð. \"Og blessað fólkið man ekki eftir þessu fyrirtæki!\" skrifar Jóhannes Björn á facebook.
\"Ég hef hugboð um að ÓRG dragi framboð sitt til baka. Annað væri skandall,\" segir Lára Hanna.
Kristinn Hrafnsson talsmaður Wikileaks og blaðamaður virðist í hópi þeirra sem taka ekki skýringar Ólafs og Dorritar trúanlegar að enginn viti neitt eða muni nokkuð. Það er reyndar mantra sem gengið hefur hjá mörgum þeirra sem hafa afhjúpast í Panamaskjölunum og flestir segjast hafa stórtapað á uppátækinu. \"Hver kannast ekki við það vandamál að muna ekkert eftir fyrirtæki á Tortólu sem maður á sjálfur og greiðir manni sjálfum rúmlega milljón sterlingspund á ári. Mamma Dorritar man ekki neitt. Dorrit, sem flutti lögheimili sitt til Bretlands, til að sökkva sér ofan í rekstur fjölskyldufyrirtækisins, veit heldur ekki neitt. Forseti Íslands segir bara no, no, no, no, no,\" skrifar Kristinn á facebook.
Með færslu sinni vísar Kristinn til viðtals við CNN sl., föstudag en þá spurði amerísk fréttakona Ólaf í beinni sjónvarpsútsendingu hvort hann eða eiginkona gætu haft nokkur tengsl við aflandsfélög. Forsetinn neitaði afdráttarlaust og hvað eftir annað. Sagði svo að það væri ekki málið.