Forseti íran

Staðfest er að Hassan Rouhani er næsti forseti Íran. Talningu atkvæða er nánast lokið og er ljóst að Hassan Rouhani sigrað með nokkrum yfirburðum. Nú er að sjá hvernig utanríkisstefnu Íran verður háttað á næstu misserum. Í forsetatíð Barack Hussein Obama forseta Bandaríkjanna náðist samkomulag við stjórnvöld í Íran um kjarnorkustefnu þeirra og um meint áform Írana að eignast kjarnorkuvopn.

Ekkert bendir til þess að Íran hafi brotið samkomulagið. Íran beitir sér að vísu gegn bandarískum hagsmunum víða um heim og þá einkum á Sýrlandi og í Jemen. Hafa ber í huga að Íran er engin aukvisi í alþjóðamálum en strangtrúðaðir klerkar og liðsmenn varðsveita íslömsku byltingarinnar eru allsráðandi í hinu nýja Íran og svo verður enn. Leiðtogar Íran með Hassan Rouhani í broddi fylkingar munu áfram koma Vesturlöndum í opna skjöldu og velgja þeim undir uggum. Þetta er spá fréttaskýrenda eftir forsetkosningarnar í gærdag.    

rtá