Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur harðlega gagnrýnt Íslendinga fyrir að hafa stutt ákvörðun Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um að rannsókn verði gerð á stöðu mannréttinda í Filippseyjum. Talsmaður forseta Filippseyja sagði meðal annars að vasar íslenskra stjórnmálamanna myndu nú fyllast af peningum frá eiturlyfjasölum, þar sem Íslendingar væru að aðstoða þá með stuðningi sínum.
18 aðildarríki Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna greiddu atkvæði með tillögunni en 13 voru á móti henni. 14 ríki sátu hjá í atkvæðagreiðslunni.
„Það er vandinn ykkar. Þið hafið of mikinn ís og það er ekki skýr munur á nóttu og degi hjá ykkur. Þið skiljið ekki glæpi, það eru engir lögreglumenn heldur og þið borðið bara ís,“ sagði Rodrigo Duterte í ræðu sem hann hélt á afmælishátíð fangelsismálastofnunar þar í landi.
Mannréttindarsamtök um allan heim hafa harðlega gagnrýnt aðgerðir yfirvalda í Filippseyjum vegna aðgerða sinna gegn eiturlyfjum. Telja samtökin að allt að sex þúsund manns hafa verið drepnir af yfirvöldum í lögregluaðgerðum. Stjórnvöld í Filippseyjum neita þessum og segja að allir þeir sem hafa verið drepnir í aðgerðum lögreglu hafi veitt mótspyrnu við handtöku.