Forseti borgarstjórnar hæðist að herkvaðningu Glúms: „Karlakarlalistinn?“

Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, hæðist að hugmyndum Glúms Baldvinssonar um að ná inn í borgarstjórn. Glúmur hefur gefið út yfirlýsingu um hann ætli sér stóra hluti í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram í maí á næsta ári.

Hann vill berjast gegn rétttrúnaði og hefja viðspyrnu gegn hugmyndum um að útrýma einkabílnum. „Ég óska sérstaklega eftir að fá til liðs við flokkinn þá karlmenn sem hafa verið kúgaðir af femínisma,“ sagði hann. Vill hann safna saman her af fólki.

Alexandra segir á Facebook að það sé óþarfi.

„Það er algjör óþarfi að safna í her, með tilheyrandi umstangi og blóðsúthellingum,“ segir hún. „Það er miklu fljótlegra og hreinlegra að hann skori bara á borgarstjórn í einvígi upp á stjórn borgarinnar, sem forseti borgarstjórnar myndi ég taka það að mér...nei bíddu, ég fór aldavillt...ég var að lesa 12. aldar reglurnar, grunar að hann hafi líka verið að því. (12 og 21 er alveg skiljanleg fljótfærnisvilla)“

Einfaldara sé fyrir hann að fara í framboð.

„Karlalistinn bauð fram síðast svo það nafn gengur sennilega ekki, hann gæti kannski notað Karlakarlalistinn?“