Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis tilkynnti þingheimi í kvöld þá ákvörðun sina að fresta umræðu um breytingar meirihluta atvinnuveganefndar á rammaáætlun til að freista þess að koma öðrum málum að.
Umræða um breytta rammaáætlun um verndun og nýutingu náttúruauðlinda hefur staðið yfir svo dögum skiptir á Alþingi með miklum fyrirgangi og yfirlýsingum stjórnarliða og stjórnarandstöðu um málþóf annars vegar og yfirgang hins vegar. Stjórnarandstöðuþingmenn hafa óspart beitt rétti sínum til að koma upp í pontu þingsalar undir liðnum fundarstjórn forseta og haldið þannig störfum þingsins í herkví sinni.
Forseti Alþingis hjó á þennan hnút í kvöld, stjórnarandstöðunni til ánægju, en hann tilkynnti engu að síður að hann ,myndi setja málið aftur á dagskrá þegar honum þætti henta. Hann vonaðist þó til þess að með þessari ákvörðun sinni myndi hann liðka fyrir störfum Alþingis og koma fleiri málum að sem þyrftu á afgreiðslu að halda.