Forsetakosningar breytast í skrípaleik

Rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson, einn allra vinsælasti pistlahöfundur Hringbrautar er með böggum hildar vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í forsetasalagnum á því herrans ári 2016. Getuleysi stjórnmálamanna síðustu áratuga hitti hér almenning fyrir.

Hann meinar sumsé að áratugi hafi íslensk stjórnmálastétt haft til þess að koma í veg fyrir þann skrípaleik sem komandi forsetakosningar komi til með að verða, sumsé þann líklega möguleika, eða ómöguleika eins og fyrrum íþróttakappi úr Gerðahreppi kallar það að mati skrifara, að hér verði kjörinn forseti með sosum 12-15% atkvæða á bak við sig: \"Sem auðvitað er hneyksli,\" skrifar Eyrbekkingurinn þvölum penna.

\"Við skulum hafa það hugfast,\" skrifar hann enn - og svitnar í lófanum \"að frambjóðendurnir ráða ekki þessum leikreglum, það eru hinir duglausu stjórnmálamenn sem hér hafa setið, mann fram af manni, góða hálfa öld. Án þess að gera það sem gera þarf. Breyta því sem einfaldast er að breyta. En, nei - þeir hafa haft annað að gera. Eins og sjá má af hryggðarmyndinni sem við blasir. Hvarvetna.\"

Skal hér tekið fram að Guðmundur sjálfur hefur ekki enn gert upp hug sinn hvað ómögulegt forsetaframboð varðar, hvað sem síðar verður.