Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita fjórum milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til hátíðardagskrár sem haldin verður á Arnarhóli sunnudaginn 28. júní í sumar þar sem þess verður minnst að 35 ár eru liðin frá sögulegu forsetakjöri Vigdísar Finnbogadóttur.
Fyrir viðburðinum fer Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í samvinnu við Alþingi, Reykjavíkrubrog, Framkvæmdanefnd um 100 ára kosningarétt kvenna og fjölmörg samtök. Skipuð hefur verið framkvæmdanefnd sem mun bera ábyrgð á undirbúningi viðburðarins og mun Lija. D. Alfreðsdóttir verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu taka sæti í framkvæmdanefndinni fyrir hönd ráðuneytisins.
Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hafa heitið fjárhagslegum stuðningi við verkefnið, allt að fimm milljónum króna, en áætlað er að heildarkostnaður við hátíðina í sumar verði 16 til 18 milljónir króna.