Forsetakjör: össur oftast nefndur

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra er einna oftast nefndur þegar lesendur fréttavefjar Hringbrautar eru beðnir um að benda á álitleg forsetaefni vegna kosninganna á sumri komanda.

Hringbraut hefur nú í þrígang spurt lesendur hvaða einstakling það kýs helst sem eftirmann Ólafs Ragnars Grímssonar á forsetastóli. Össur hefur verið með langmesta fylgið í öll skiptin, 49% þeirra sem tóku þátt í fyrstu könnunni nefna nafn hans, sama hlutfall í þeirri annarri og 54% í þeirri þriðju sem enn er í gangi á vefnum.

Hér ber Össur höfuð og herðar yfir aðra einstaklinga sem nefndir hafa verið, en þó hafa Kári Stefánsson og Ragna Árnadóttir fengið ágætt brautargengi, Kára segjast 29% þátttakenda í nýjustu könnunni vilja sjá á Bessastöðum, en 27% þeirra sem tóku þátt í annarri könnunni nefndu nafn Rögnu.

Í fyrstu könnunni voru fjögur nöfn nefnd til sögunnar og þeir tveir sem fengu þar mesta fylgi voru nefndir í þeirri næstu og svo koll af kolli.

Þeir aðrir sem nefndir hafa verið eru Ólafur Jóhann Ólafsson (mest 22%), Berglind Ásgeirsdóttir (mest 16%), Þorgrímur Þráinsson (mest 13%) Guðrún Nordal (mest 10%) og Magnús Geir Þórðarson (mest 6%). 

Hringbraut mun halda áfram með þennan samkvæmisleik sem er óformleg könnun á vilja lesenda Hringbrautar í þessum efnum.