Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid, forsetafrú, fljúga til Lundúna í dag til að taka þátt í dagskrá vegna andláts Elísabetar II. Bretadrottningar.
Í kvöld býður Karl III. Bretakonungur til móttöku í Buckinghamhöll þar sem forsetahjónin verða viðstödd.
Útför Elísabetar fer svo fram frá Westminster Abbey á morgun og að henni lokinni munu forsetahjónin sækja móttöku utanríkisráðherra Bretlands í Church House við Dean's Yard í Westminster.
Guðni og Eliza munu svo fljúga aftur til Íslands annað kvöld.