,,forsetaframbjóðandi með sinn eigin heilsukokk”

Björn Skúlason heilsukokkur sér um að forsetaframbjóðandinn Halla Tómasdóttir fái góða næringu í kosningabaráttunni. Björn sýnir í ,,Fólki með Sirrý” hvernig hann blandar staðgóðan, gómsætan og nærandi heilsudrykk handa Höllu. Reyndar eru Björn og Halla hjón og því hæg heimatökin fyrir forsetaframbjóðandann að fá heilsusamlegan mat í kosningabaráttunni. Þau koma fram í þættinum sem tekinn var upp í Garðheimum í Mjódd. Björn er viðskiptasálfræðingur að mennt en Halla hvatti hann til að láta drauma sína rætast og fara að læra það  sem hann hafði mestan áhuga á en það er að elda heilsusamlegan mat.

Hér má smá brot úr þættinum…