Mikil tíðindi urðu í prófkjöri sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi í gær þegar flokksmenn höfnuðu Magnúsi Guðmundssyni, forseta bæjarstjórnar. Magnús hafði sóst eftir leiðtogasæti en mátti sætta sig við þriðja sætið á eftir sigurvegara prófkjörsins, Þór Sigurgeirssyni, syni Sigurgeirs Sigurðssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, sem stýrði bæjarfélaginu af röggsemi í 40 ár á síðustu öld og fram á þessa, og Ragnhildi Jónsdóttur sem er varabæjarfulltrúi á kjörtímabilinu sem er að renna sitt skeið.
Ólafur Arnarson gerir niðurstöðurnar að umfjöllunarefni í Náttfarapistli á Hringbraut í dag. Hann segir það vekja athygli hve kjörsókn hafi verið dræm, einungis 62 prósent, sem ekki þyki mikið þegar fjórir frambjóðendur berist um fyrsta sætið.
Ólafur skrifar að lengst af hafi Magnús talist sjálfsagður arftaki Ásgerðar Halldórsdóttur, núverandi bæjarstjóra, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
Niðurstaða prófkjörsins, þar sem forseti bæjarstjórnar hafnar í þriðja sæti, eru að mati Ólafs hrein og klár höfnun kjósenda flokksins á Magnúsi.
Þá segir Ólafur Svönu Helen Björnsdóttur hafa komið skemmtilega á óvart með því að ná fjórða sætinu. Hann segir Pétur Árna Jónsson, eiganda Viðskiptablaðsins, vera mikinn bandamann hins fallna forseta bæjarstjórnar og segir Pétur Árna vera talin hafa skrifað grein í blað sitt undir dulnefni með hrakspám um gengi Svönu í prófkjörinu vegna þess að hún væri Evrópusinni, en slíkt ætti ekki upp á pallborðið hjá Sjálfstæðisfólki á Seltjarnarnesi. Úrslitin sýni annað og svo virðist sem Magnús Guðmundsson og stuðningsmenn hans séu illa læsir á umhverfi sitt í stjórnmálunum á Nesinu.
Ólafur gerir ráð fyrir því að Magnús átti sig á skilaboðum kjósenda Sjálfstæðisflokksins og taki hatt sinn og staf og kveðji bæjarmálapólitíkina í bæjarfélaginu. Hann á þó von á því að róðurinn hjá Þór og öðrum frambjóðendum flokksins verði þungur. Mörg umdeild mál hafi komið upp á yfirstandandi kjörtímabili og lítill einhugur virðist ríkja innan flokksins. Þá hljóti það að teljast nokkur tíðindi þegar forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs sé hafnað með svo afgerandi hætti sem raun ber vitni.