Vogunarsjóðirnir áttu að bíða lengur, segir Lilja Alferðsdóttir, þingmaður og varaformaður Framsóknarflokksins á Þjóðbraut í kvöld. Hún mætir í þáttinn ásamt Jóni Steindóri Valdimarssyni þingmanni Viðreisnar og sem hefur verið í forystu í íslensku atvinnulífi um langt árabil. Þau sitja bæði í efnahagsnefnd Alþingis og ræddu um kaup Seðlabankans á aflandskrónum fyrir um 90 milljarða króna og afléttingu gjaldeyrishafta sem kynnt var í upphafi vikunnar.
Jón Steindór, segir eðlilegt að hafa keypt krónurnar af erlendu eigendunum þótt minna hafi fengist fyrir þær núna en í síðasta útboði í fyrrasumar. Jón Steindór bendir á að aðstæður í íslensku efnahagslífi séu allt aðrar en í fyrra og forsenda hafta löngu horfin. Ekki sé hægt að tala um að íslenska ríkið hafi tapað neinu á því að kaupa krónur nú eða síðar.
Þjóðbraut er frumsýnd kl.21. Þátturinn er á milli 21 og 22.