Forsætisráðuneytið segir sáttaviðræðum ekki lokið

Forsætisráðuneytið hefur sent frá tilkynningu vegna fréttaflutnings af sáttaviðræðum milli sáttanefndar stjórnvalda og fimm sýknaðra sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Í morgun var greint frá því að búið væri að slíta viðræðunum eftir að Guðjón Skarphéðinsson, einn fimmmenninganna, hafnaði boði nefndarinnar um bætur.

Segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins að ráðuneytinu hafi ekki borist skilagrein frá nefnd sem hafi verið skipuð til að leiða sáttaviðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda í málinu. Því líti ráðuneytið ekki á það sem svo að sáttaviðræðum sé formlega lokið.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þó áðurnefnd skilagrein frá nefndinni það eina sem út af stendur. Í umfjöllun blaðsins segir að eina verkið sem sáttanefndin eigi eftir í starfi sínu sé að semja skilabréf sitt til forsætisráðherra.

Fréttablaðið greinir einnig frá því að Andri Árnason, settur ríkislögmaður í málinu, eigi eftir að taka formlega afstöðu til kröfu Guðjóns, sem hljóðaði upp á rúman milljarð króna í miskabætur og um það bil 400 milljónir að auki í bætur fyrir missi atvinnutekna. Þar sem ekki var gengið að kröfunni við borð sáttanefndar er talið næsta víst að henni verði hafnað.

Ragn­ar Aðal­steins­son, lögmaður Guðjóns, sagði í sam­tali við Mbl.is í dag að ríkið hafi slitið samn­ingaviðræðunum í sáttaum­leit­un­um milli ríkisins og hinna sýknuðu og aðstand­enda þeirra. Því hefði hann engra annarra kosta völ en að fara með málið fyrir dóm.

Tilkynning forsætisráðuneytisins í heild sinni:

„Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum í dag telur forsætisráðuneytið rétt að fram komi að forsætisráðuneytið hefur ekki fengið skilagrein frá nefnd sem skipuð var til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar þann 27. september síðastliðinn í endurupptökumáli og aðstandendur þeirra. Lítur ráðuneytið því hvorki svo á að sáttaviðræðum sé formlega lokið né hlutverki setts ríkislögmanns, sem falið var að ljúka málinu annað hvort á grundvelli breiðrar sáttar eða viðræðna við hvern og einn sem sýknaðir voru eða aðstandendur þeirra.“