Efnt var til hátíðarhalda í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins á þjóðhátíðardegi Íslendinga hinn 17. júní sl. Forsætisráðuneytið, Reykjavíkurborg og Alþingi önnuðust undirbúning. Hátíðardagskráin var sett á Austurvelli þar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, lagði blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði þjóðina og fjallkonan, Aldís Amah Hamilton, flutti ljóð eftir Bubba Morthens. Þannig hefst tilkynning frá forsætisráðuneytinu. Þar er greint frá því að kostnaður í tengslum við hátíðarhöld er tengjast forsætisráðuneytinu voru tæpar átta milljónir. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir:
„Að lokinni hátíð á Austurvelli var haldinn þingfundur ungmenna sem sýndur var í beinni útsendingu á RÚV þar sem ungu fólki gafst tækifæri til að koma málefnum sem á þeim brenna á framfæri við ráðamenn þjóðarinnar. Í tilefni af hátíðarhöldunum var boðið upp á 75 metra langa lýðveldisköku og lykilstofnanir í miðbæ Reykjavíkur voru með opið hús.“
Þá segir einnig:
„Við undirbúning og framkvæmd hátíðarhaldanna var leitað eftir tilboðum í alla verkþætti. Nam heildarkostnaður forsætisráðuneytisins um 7.816.000 kr.“