Forsætisráðherrar Norðurlandanna hvetja forseta Bandaríkjanna til að standa við Parísar samkomulagið.
Þeir sendu því í gær Donald J Trump forseta Bandaríkjanna sameiginlegt bréf þar sem forsetinn er hvattur til að standa við Parísar samkomulagið um loftslagsmál.
Leiðtogar heims hittust í París í Frakklandi í desember árið 2015 og gengu frá samkomulaginu. Í samkomulaginu er fyrsta sinn kveðið á um að öll ríki skuli bregðast við til þess að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegund og takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og tryggja umtalsvert fjármagn til grænna lausna og aðstoð við ríki sem verða verst úti í breytingum.
Í bréfi forsætisráðherranna er lögð áhersla á mikilvægi þess að draga úr áhrifum loftslagsbreyigna af mannavöldum og hvetja þeir forseta Bandaríkjanna til að vera leiðandi á þeirri vegferð.
rtá
Nánar www.stjornarrad.is