Forsætisráðherra um vigdísi: „hugmyndin um að ísland gæti náð máli í jafnréttismálum, umhverfismálum og á sviði menningarlegrar fjölbreytni varð í raun til með henni"

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði gesti á málþingi Háskólans á Akureyri á föstudaginn var um hin víðtæku áhrif Vigdísar Finnbogadóttur á samfélagið.

Málþingið var haldið í tilefni þess að Vigdís var þann sama dag sæmd heiðursdoktorsnafnbót við HA. Forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, ávarpaði einnig þingið.

Forsætisráðherra fjallaði um hin víðtæku áhrif Vigdísar á sviði umhverfismála, jafnréttismála og menningarlegrar fjölbreytni og hafði orð á hinum miklu áhrifum Vigdísar fyrir að vera fyrirmynd heillar kynslóðar sem ólst upp við það að kona gegndi embætti forseta Íslands.

„Áhrif Vigdísar Finnbogadóttur á íslenskt samfélag og sérstaklega Íslendinga sem ólust upp á árunum 1980–1996 verða varla ofmetin og þar á meðal auðvitað áhrifin af því þegar Íslendingar vöknuðu upp einn júnímorgun árið 1980 og höfðu kosið konu þjóðhöfðingja landsins, fyrsta þjóðin sem gerði það og þó var þessi þjóð alls ekkert sérstaklega framarlega í jafnréttismálum árið 1980 heldur fremur afturbátur nágrannaþjóða,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í ræðu sinni.

Sagði hún alla þá sem hafi verið uppi á þessum tíma muna eftir þessu forsetakjöri og tilfinninguna sem það vakti meðal þjóðarinnar.

„Auðvitað eru margir sem muna kjörið aldir upp af foreldrum sem studdu einhvern annan en samt fylltust flestallir stolti yfir að Íslendingar hefðu náð að brjóta blað í sögu heimsins. Og Vigdísi tókst á ótrúlega skömmum tíma að sameina þjóðina að baki sér, meðal annars vegna þessa þjóðarstolts en líka með því hvernig hún fékkst á við embættið og hversu vel hún naut sín meðal annarra þjóðhöfðingja og við alls konar virðulegar athafnir.“

Þá sagðist Katrín ekki vera í nokkrum vafa um það að Vigdís Finnbogadóttir hafi orðið fyrirmynd heillar kynslóðar, karla og kvenna.

„Hugmyndin um að Ísland gæti náð máli í jafnréttismálum, umhverfismálum og á sviði menningarlegrar fjölbreytni varð í raun til með henni. Og ég veit það sjálf að Vigdís hefur verið mín fyrirmynd því ég veit að þó að ferill hennar hafi verið farsæll mátti hún oft mæta mótvindi og gerði það alltaf af reisn.“

Ræðu forsætisráðherra má lesa í heild sinni á vef Stjórnarráðsins.