Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist styðja ákvörðun Sigríðar Á. Andersen um að stíga tímabundið til hliðar sem dómsmálaráðherra. Katrín vill ekki gefa upp hver tekur við sem dómsmálaráðherra. Hún staðfestir að úrskurði MDE vegna Landsréttarmálsins verði áfrýjað til yfirréttar í Strassborg. Fréttablaðið greinir frá.
Í samtali við Fréttablaðið segir Katrín það vera forgangsatriði ríkisstjórnarinnar að tryggja vissu um starfsemi Landsréttar. Hún sagði að það sæist strax að úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu hafi mikil áhrif. Það mætti t.d. sjá á því að málum þeirra fjögurra dómara sem Sigríður skipaði í Landsrétt, án þess að þeir væru metnir hæfastir af hæfnisnefnd, hafi verið frestað út vikuna.
„Stærsta forgangsmál ríkisstjórnarinnar er að tryggja hér réttaröryggi, tryggja vinnufrið um starfsemi dómstóla og það er mjög mikilvægt að það verði gert með markvissum hætti á næstu dögum,“ sagði Katrín.
Katrín sagði ríkisstjórnina hafa ráðið sérfræðinga til að rýna í úrskurð MDE og staðfesti að dómnum verði áfrýjað til yfirréttar í Strassborg.