Forsætisráðherra skeytingarlaus um stjórnsýslu

Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi VG í Þingvallanefnd, segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráherra  skeytingarlausan um góða stjórnsýsusýsluhætti og krefst fundar í nefndinni hið fyrsta til að ræða hugmyndir hans um endurbyggingu Valhallar í þjóðgarðinum.


Svandís hefur formlega óskað eftir því við Sigrúnu Magnúsdóttur, umhverfisráðherra og formann nefndarinnar, að fundað verði hið fyrsta til að ræða þessar hugmyndir forsætisráðherra.


Svandís minnir á það í bréfi sínu að Þingvallanefnd fari með yfirstjórn Þingvallaþjóðgarðs lögum samkvæmt og því sýni forsætisráðherrann af sér skeytingarleysi um góða stjórnsýsluhætti og málefni Þingvallaþjóðgarðs með því að sniðganga nefndina og seilast til áhrifa á verksviði hennar. Sigmundur Davíð kynnti hugmyndir sínar í fjölmiðlum þann 1. apríl síðastliðinn.