Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra útskýrði á Alþingi í dag ummæli sín, hvað hann hefði átt við þegar hann bar blak af forvera sínum, Sigmundi Davíð vegna Tortólamálsins.
Þá sagði Sigurður Ingi að einhvers staðar yrðu peningar að vera og að flókið væri að eiga peninga á Íslandi.
Ummælin skýrði forsætisráðherrann í fyrirspurnatíma að beiðni Ólínu Þorvarðardóttur þingmanns Samfylkingar sem vildi fá skýringar í umræðu um skattaskjól.
Sigurður Ingi sagði að ummæli hans þegar hann gekk niður stjórnarráðströppurnar og svaraði fréttamanni sem spurði spurninga án þess að hann væri í formlegu viðtali yrði að skoða í því ljósi. Hann hefði verið að tala um samfélagið. Þeir sem ættu fjármuni hér á landi hefðu alltaf verið milli tannanna á fólki, oft þætti gagnrýnivert að menn ættu hér peninga. Hann hefði átt við það.