Sigurður Ingi Jóhannsson, verðandi forsætisráðherra þjóðarinnar frá og með síðdeginu í dag, sagði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag að ekkert væri að því að eiga fé í lágskattaríkjum.
Ummæli hans féllu vegna fyrirspurnar Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG á þingfundi í morgun. Hún spurði ráðherra út í stuðning hans við mál Sigmundar Davíðs. Svaraði ráðherra að fjöldi manns frá Íslandi hefði sett fé sitt og geymt í erlendum lágskattaríkjum. Ekkert væri að því þegar sömu menn skiluðu sköttum og skyldum og væru ekki að stofna til félagseignar utan landsteinanna í annarlegum tilgangi.
Katrín spurði eftir svar ráðherrans hvort Sigurður Ingi, verðandi forsætisráðherra, sæi virkilega ekkert að því sem hann hefði sat. Ísland væri aðili að átaki til að berjast gegn skattaskjólum, verjast gegn svæðum sem veittu ekki upplýsingar skálfkrafa um eignir. Væri veruleikinn virkilega sá að verðandi forsætisráðherra þjóðarinnar ætlaði ekki að berjast gegn tilvist þessara skattaskjóla, helsti trúnaðarmaður þjóðarinnar?
Sigurður Ingi svaraði þá að hann vissi ekki nema að Katrín væri að misskilja. Það sem væri löglegt samkvæmt lögum væri löglegt.
Vantrauststillaga verður rædd á fundi Alþingis á morgun.