Fyrir réttu ári var Theresa May ein eftir í framboði til embættis leiðtoga Íhaldsflokksins. Hún varð leiðtogi flokksins hinn 11.júlí í fyrra og tók við embætti forsætisráðherra Stóra-Bretlands hinn 13.júlí og hefur því í dag gegnt því embætti í eitt ár.
Theresa May stýrir því erfiða verki að leiða Stóra-Bretland út úr Evrópusambandinu (ESB) í samræmi við Brexit þjóðaratkvæðagreiðlsuna í júní í fyrra. Tæpur helmingur breskra kjósenda kaus þá að ganga úr ESB.
Theresa May sagði og segir enn að ekki komi tilgreina að sniðganga niðurstöðuna en þó var hún ein þeirra í Íhaldsflokknum sem vildi að Bretar væru um kyrrt í ESB.
Andstæðingar hennar í stjórnmálum segja það hafa verið mistök hjá Íhaldsflokknum að velja stjórnmálamann sem hafi verið á móti útgöngu Breat úr ESB til að leiða Brexit ferlið.
Segja þeir sömu að hún hafi misst allan trúverðugleika. Ekki er útilokað að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um útgöngu Breta úr ESB.
Íhaldsflokkurinn kom óvænt afar illa út úr þingkosningunum hinn 8. júní sl. og býr flokkurinn nú við veikan meirihluta í neðri málstofu breska parliamentsins. Með svo nauman meirihluta geta fámennir hópar þingmanna í Íhaldsflokknum hlaupið út undan sér.