Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Jeremy Corbyn, formanni Verkamannaflokksins og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, í breska þinginu í gær. Á fundinum voru einnig John McDonnell, skuggaráðherra fjármála, og Emily Thornberry, skuggaráðherra utanríkismála. Forsætisráðherra og Corbyn ræddu meðal annars um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, efnahagsmál, loftslagsmál og alþjóðasamvinnu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir einnig að Katrín hafi tekið þátt í hringborðsumræðum á vegum hugveitunnar Fabian Society um framtíðaráskoranir í atvinnumálum en meðal þátttakenda voru Paul Nowak, framkvæmdastjóri Trade Union Congress (TUC) og Ed Miliband, þingmaður og fyrrum formaður Verkamannaflokksins. Katrín sagði:
„Við áttum afar áhugaverðar umræður um framtíð vinnunnar og þær áskoranir sem ný tækni hefur í för með sér. Ég ræddi meðal annars um þær breytingar sem geta orðið á íslenskum vinnumarkaði og hefur verið fjallað um í stefnumótunarvinnu stjórnvalda um fjórðu iðnbyltinguna.“
Þá tók forsætisráðherra þátt í vinnufundi smærri ríkja um velsældarhagkerfi (e. Wellbeing Economy Governments) í Edinborg í morgun. Þar fjallaði hún um mikilvægi þess að efla þekkingu á velsæld og leiðum til að endurmóta hagkerfið svo það mæti þörfum nýrra tíma. Ísland á aðild að samstarfverkefninu ásamt Skotlandi, Nýja Sjálandi og fleiri ríkjum. Þar sagði Katrín:
„Loftslagsvandinn er eitt skýrasta merki þess að við þurfum að endurmeta mælikvarða okkar í efnahagsmálum og samfélagsþróun. Á tímum þar sem alþjóðleg samvinna á undir högg að sækja er mikilvægt að smærri ríki leggi sitt af mörkum við að byggja upp sjálfbært efnahagskerfi.“
Fundirnir eru hluti af dagskrá forsætisráðherra í þriggja daga heimsókn hennar til Bretlands. Í dag mun Katrín funda með Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, og flytja fyrirlestur við London School of Economics.