Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að fela Oddi Þorra Viðarssyni, lögfræðingi á skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu, að sinna starfi ráðgjafa um upplýsingarétt almennings. Oddur Þorri hefur starfað í ráðuneytinu frá 2015 og hefur meðal annars gegnt starfi ritara úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Alþingi samþykkti frumvarp forsætisráðherra um breytingar á upplýsingarlögum í sumar. Breytingarnar hafa í för með sér að kveðið er á um að af hálfu stjórnvalda skuli starfa sérstakur ráðgjafi um upplýsingarétt almennings sem hefur það hlutverk að stuðla að bættri upplýsingagjöf hins opinbera. Forsætisráðuneytið sér ráðgjafanum fyrir starfsaðstöðu en hann er í ráðgjöf sinni óháður fyrirmælum frá ráðherra og öðrum. Hlutverk ráðgjafans er meðal annars að leiðbeina þeim sem til hans leita um framsetningu beiðni um aðgang að gögnum og að vera stjórnvöldum og öðrum aðilum sem falla undir til ráðgjafar um aðgang að gögnum. Einnig mun hann fylgjast með því hvernig opinberir aðilar rækja skyldur sínar til að veita almenningi aðgang að upplýsingum, hvort sem er samkvæmt beiðnum eða að eigin frumkvæði og koma tillögum að úrbótum á framfæri þar sem við á.
Aðgerðirnar eru sagðar vera liður í því markmiði forsætisráðuneytisins að styrkja upplýsingarétt almennings og starfsgrundvöll úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Ráðuneytið segist muna áfram fylgjast með þróun málsmeðferðartíma nefndarinnar og grípa til frekari aðgerða ef þörf krefur.