Forsætisnefnd skoðar akstursféð

Skrifstofustjóri Alþingis hefur fengið forsætisnefnd þess að skýra reglur um starfskostnað og kjör alþingismanna eftir þau hámæli sem akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi komust í, en hann hefur jafnvel verið sakaður um draga sér fé í þessum efnum.

Í tilskrifi sínu vegna þessa kveðst skrifstofustjórinn vera að drukkna í fyrirspurnum fjölmiðla - og hann segir af því til efni að næstu daga muni forsætisnefnd Alþingis halda áfram umfjöllun sinni um þær reglur sem í gildi eru og taka þær til endurskoðunar, fyrirkomulag þeirra, eftirfylgni og upplýsingagjöf: \"Fyrsta skrefið er fundur forsætisnefndar nk. mánudag þar sem málið verður rætt og m.a. farið yfir hvernig upplýsingum um þessi mál verður miðlað framvegis. Eins og kom fram í tilkynningu minni fyrr í vikunni hafa hugmyndir og drög að reglum í þeim efnum verið til umræðu í nefndinni um allnokkurn tíma,\" segir skrifstofustjórinn og klykkir út með þessum orðum: \"Beiðnum fjölmiðla um frekari upplýsingar verður vísað inn í vinnu forsætisnefndar og henni hraðað eins og kostur er.\"