Forrík útgerð eitrar pólitíska umræðu!

\"Ævintýralegur auður útgerðarmanna er farinn að eitra verulega alla pólitíska umræðu í landinu,\" skrifar hagfræðingurinn og þjóðmálarýnirinn Jón Steinsson í grein sem birtist eftir hann í Fréttablaðinu í dag. Þar skefur hann ekki utan af hlutunum.

Hann kveðst lengi hafa barist fyrir því að þjóðin fái fullt gjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindum sínum - og kallar eftir uppboði á veiðiheimildum. Rökin fyrir þessari leið séu tvennsskonar, annars vegar sé óeðlilegt að sameiginlegri auðlind sé ráðstafað til fámenns hóps útvalinna, hins vegar verði ríkissjóður af leigutekjum af langhagkvæmustu tekjulind sinni.

Og þriðju rökin hafi nú bæst við, skrifar Jón: \"Núverandi gjafakvótafyrirkomulag hefur orðið til þess að fámennur hópur útgerðarmanna hefur orðið ævintýralega auðugur á íslenskan mælikvarða. Þessi ævintýralegi auður hefur gert útgerðarmönnum kleift að kaupa sér gríðarleg áhrif þegar kemur að stjórnmálum og þjóðfélagsumræðu í landinu,\" skrifar Jón í dag.

Hann segir útgerðarmenn kosta að stórum hluta núverandi stjórnarflokka - og eigi þar að auki einn stærsta fjölmiðil landsins sem notaður sé í stanslausu áróðurskyni. Áróðurinn bylji á landsmönnum daginn út og inn: \"Alls kyns hálfsannleikur og smjörklípur eru endurteknar svo oft að þær síast inn í vitund þjóðarinnar og brengla þjóðfélagsumræðuna útgerðarmönnum í hag.\"

Hann spyr hvort atburðarás síðustu daga sýni ekki að áhrif útgerðarmanna á stjórnmálin séu ekki orðin miklu meiri en ótæpileg: \"Þegar formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn að setja spurningarmerki við það að Ísland taki þátt í samvinnu vestrænna lýðræðisríkja í öryggis- og varnarmálum, sem snúa að því að refsa ríki sem ráðist hefur með hervaldi á nágrannaþjóð sína, er fátt orðið heilagt fyrir sérhagsmunum útgerðarmanna,\" skrifar Jón í Fréttablaðið í dag - og hann vill útgerðarauðinn til þjóðarinnar svo þessi valdahlutföll snúist við.