Fornleifafræðingar hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með það hvernig staðið var að skipun nýs þjóðminjavarðar.
Í yfirlýsingu sem þeir sendu Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, kemur fram að þeim þyki ráðningarferlið hafa verið óvandað, ógegnsætt og metnaðarlaust.
Líkt og greint var frá fyrr í dag var skipað í embættið án þess að það hafi verið auglýst.
Stjórn Félags fornleifafræðinga segja í yfirlýsingu sinni þvílíkt metnaðarleysi fyrir íslenskri menningu og safninu að ekki hafi verið staðið betur að ráðningarmálum þjóðminjavarðar en þetta.
Í yfirlýsingunni er sérstaklega tekið fram að gagnrýni stjórnarinnar snúi ekki að þeirri persónu sem var skipuð heldur að því að staðan hafi ekki verið auglýst til umsóknar.
Hægt er að lesa meira um málið hér.