Fórnarkostnaður kapítalismans — „Alltaf einhver sem borgar brúsann“

Sif Sigmarsdóttir, einn vinsælasti pistlahöfundur landsins, gerir nýfallin dóm yfir eiganda starfsmannaleigu að umræðuefni í nýjasta pistli sínum í Fréttablaðinu í dag.

Eigandi starfsmannaleigunnar var fyrir helgi dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stefna lífi verkamanna í bráða hættu. Lét hann starfsmenn leigunnar, erlenda verkamenn, búa í iðnaðarhúsi í Reykjavík án tilskilinna leyfa og brunavarna.

Málið má rekja til ársins 2018 þegar lögreglan rannsakaði þjófnað á Smiðshöfða og uppgötvaði á þriðja tug erlendra verkamanna sem bjuggu í svefnkassa úr spónaplötum í húsnæðinu. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri sagði í samtali við RÚV að dómurinn væri fagnaðarefni og sendi skýr skilaboð.

Sif ber málið saman við mikinn harmleik sem varð í Bangladess árið 2013 þegar 1.134 manns sem létust í einu mesta iðnaðarslysi sögunnar:

„Rana Plaza harmleikurinn markaði tímamót. Ógerlegt var lengur að líta fram hjá þeim mannlega fórnarkostnaði sem hlýst af ásælni okkar í ódýran tískufatnað,“ skrifar Sif.

Eins víkur hún máli sínu að nýliðnum atburði, dreifingu kórónaveirunar í borginni Leicester, en þegar heimsfaraldurinn brast á var starfsfólki hinna þúsund til fimmtán hundruði fatagerða í borginni gert að halda áfram vinnu eins og ekkert hefði í skorist.

„Úr varð hópsýking sem leiddi til þess að 360.000 manna borg var skellt í lás á sama tíma og aðrir landshlutar risu úr Covid-dvala.“

Í málum þessum felast þessi skilaboð að mati Sifjar: „Þótt við teljum okkur gera góð kaup er alltaf einhver sem borgar brúsann.“