Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landræðslustjóri, segir hrossaræktendur í þéttbýli fara ver með landið en bændur. „Þeir þekkja landið ekki eins vel og þeir sem hafa hugað að því allt sitt lif.“
Sveinn er í viðtali við Þjóðbraut í kvöld. Þar gagnrýnir hann ekki síst stjórnmálamenn sem hann segir ekki hafa fengist til að endurskoða lög um landrgæðslu í áratugi. Megin lögin eru frá árunum 1965 og 1969. En hvers vegna?
Þeir þora ekki að stugga við bændaforystunni á hverjum tíma segir Sveinn. Hann segir stjórnmálamenn hugsa það mikið um atkvæðin. Já, þeir gera það, sagði hann þegar hann var spurður hvort þeir mætu atkvæðin meir en landið.
Sveinn segir gott að vita að ráðherrar hlýti ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar varðandi nýtingu fiskimiðana en segir að ráðum færustu fræðimanna varðandi landnýtingu sæe aldrei hlýtt.