Samkvæmt ráðagerð Sameinuðu þjóðanna árið 1947 um skiptingu Palestínu á Jerúsalem að vera alþjóðaborg.
Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna er aðeins að framfylgja vilja Bandaríkjaþings þegar hann lýsir því yfir að Bandaríkin telji svo ekki vera.
Þetta vill gleymast.
Það eru bandarískir þingmenn sem standa á bak við þessa framkvæmd.
Donald J. Trump byggði sitt gefna kosningaloforð á þessari ákvörðun bandaríska þingsins.
Donald J. Trump er því ekki á valdi Zíon hugsjónarinnar eða hinna björtu drauma um Zíon.
Nú er að sjá hvort almenningur í Bandaríkjunum styður markmið Zíonista um þjóðarheimili allra Gyðinga í Ísrael.
Vera má að stefna Evrópuþjóða gegn áformum Ísraelsmanna harðni.
Í því háspennta andrúmslofti sem nú er munu hryðjuverkasamtök víða um heim sennilega ganga berseksgang.
Látlausar árásir þeirra um jól og áramót eru fyrisjáanlegar.
Þrátt fyrir ytra æðruleysi þjóða Sameinuðu þjóðanna er þörfin mjög brýn að bregðast við þessari ákvörðun forseta Bandaríkjanna af miklum stórhug enda er þetta nú alþjóðlegt vandamál.
Á Íslandi er hægt að sjá fyrir sér ískyggilegar innanríkisviðsjár þegar vinir Araba hér á landi efna til uppþota og óspekta á götunum og mótmæla hvers konar samkiptum við Ísrael og Bandaríkin.
Strax flæða inn á borð fyrsta ráðuneytis Katrínan Jakobsdóttur kröfur vegna þessarar ákvörðunar forseta Bandaríkjanna.
Utanríkisviðsjár verða fljótt hin mestu mál og ráðuneyti Katrína bara vikugamalt.
Ísrael og Bandaríkin ógna sem sagt framtíð fyrstu ríkisstjórnar Íslands undir forsæti liðsodda VG Katrínar Jakobsdóttur.
Styrjöld í Mið-Austurlöndum er líkast til á næsta leiti.
Forn spádómur rætist.