Formenn nefnda valdir

Ljóst er hverjir muni gegna formennsku í fjórum af átta nefndum þingsins en stjórnarandstaðan hefur harðlega deilt á meirihlutann sem hún segir taka sér of mörg formannssæti með minnsta mögulega þingmeirihluta. Fjórir nefndarfundir voru haldnir í morgun og þar var ákveðið hverjir verða formenn. 

Frá Sjálfstæðisflokknum verða þingmennirnir Har­ald­ur Bene­dikts­son, formaður fjár­laga­nefnd­ar og Óli Björn Kára­son, formaður efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar. Val­gerður Gunn­ars­dótt­ir var kjör­in formaður um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar.

Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartr­ar framtíðar, verður formaður vel­ferðar­nefnd­ar Alþing­is en það vekur athygli að búist var við því að stjórnarandstaðan myndi skipa formann þeirrar nefndar en á síðasta kjörtímabili hafði Samfylkingin formann nefndarinnar. 

Á síð­asta kjör­tíma­bili var stjórn­ar­and­staðan með for­mennsku í bæði vel­ferð­ar­nefnd og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd. Birgir Ármannsson sagði við mbl.is að það væri ekki útilokað að stjórnarflokkarnir myndu manna allar átta formannsstöðurnar.