Formannafundur así ræðir uppsögn

Alþýðusamband Íslands hefur boðað til formannafundar á miðvikudag til að ræða uppsögn kjarasamninga, en fresturinn til að taka ákvörðun um boðun rennur út þann dag kl 16.

Á fundi samninganefndar ASÍ miðvikudaginn 21. febrúar sl. lagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ til að boðað yrði til formannafundar þar sem endurskoðun kjarasamninga yrði bæði rædd og leidd til lykta með atkvæðagreiðslu. Á frétt á heimasíðu ASÍ segir að í því felist markverð breyting á umboði samninganefndar ASÍ og hafi Gylfi óskað eftir því að fulltrúar í samninganefnd ASÍ leituðu heimilda hjá sínum samninganefndum að viðhafa þennan háttinn á í þetta sinn. Verði það samþykkt, en til þess þarf samþykki allra fulltrúa í samninganefndinni, verður á formannafundinum viðhöfð leynileg rafræn atkvæðagreiðsla um uppsögn kjarasamninga á grundvelli 2. mgr. 39.gr. laga ASÍ.