Flokksráðsfundur VG fór fram um helgina á Akureyri á föstudag og laugardag. Þar spurði formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir í ræðu sinni: Hverjum treysa kjósendur treysta til að standa við stóru orðin? Þar beindi hún sjónum að hægri flokkunum sem hún segir skipta um ham fyrir kosningar:
“Og menn hafa líka dregið fram grænþvottaduftið. Nú er engin stóriðja í spilum lengur, heldur hljóma allir eins og við vinstrigræn talandi um nýsköpun og skapandi greinar – það vantar bara fjallagrösin. En hver er sannleikurinn á bak við það hjá flokkum sem byrjuðu á að afturkalla ný náttúruverndarlög og taka rammaáætlun úr sambandi og hafa svo verið hraktir til baka af okkur í stjórnarandstöðunni sem gáfumst ekki upp í þessum málum?”, sagði Katrín í ræðu sinni á fundinum.