Formaður suf: stórfé fyrir barnavernd

 

Ráðuneyti Eyglóar Harðardóttur gerði ekki bara vel við Siv Friðleifsdóttur í greiðslum fyrir störf 2014-2015 eins og Hringbraut greindi frá í gær að hefði fengið tæpar 20 milljónir króna fyrir unnin störf fyrir velferðarráðuneytið heldur fékk formaður Sambands ungra Framsóknarmanna, Ágúst Bjarni Garðarsson, 2,9 milljónir króna frá velferðarráðuneytinu vegna vinnu nefndar um stjórnsýslu á sviði félagsþjónustu og barnaverndar.

Óljóst er í hverju sérfræðikunnátta Ágústs Bjarna felst á sviði félagsþjónustu og barnaverndar. Á vef stjórnarráðsins segir um Ágúst Bjarna að hann hafi í maí sl. verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

„Ágúst hefur starfað sem stundakennari, verkefnisstjóri og nú síðast á skrifstofu utanríkisráðherra. Ágúst lýkur meistaraprófi í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík í næsta mánuði. Hann er í sambúð með Áslaugu Maríu Jóhannsdóttur sálfræðinema og saman eiga þau dreng,“ segir á vef ráðuneytisins.