Formaður öryrkja lítur til bessastaða

Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalags Íslands íhugar nú alvarlega að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópi fólks sem hefur að undanförnu skorað á Ellen að bjóða sig fram. Segir að Ellen hafi ákveðið að taka sér nokkra daga til umhugsunar. Ákvörðunar sé að vænta á allra næstu dögum.
 
Ellen er 42 ára gömul og er gift Johani Tegelblom flugvirkja. Saman eiga þau fjögurra ára gamlan son. Ellen er kennari að mennt og með diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu og hefur lagt stund á meistaranám í því fagi.  Hún hefur starfað sem kennari, í opinberri stjórnsýslu á sveitarstjórnarstiginu m.a. sem ritari borgarstjóra og fræðslu- og menningarfulltrúi hjá Seltjarnarnesbæ. Þá var hún framkvæmdastjóri ADHD samtakanna þar sem hún er nú stjórnarmaður.
\"Ellen lætur verkin tala og hefur verið óþreytandi í baráttu sinni fyrir bættum lífskjörum öryrkja, fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra. Hún hefur sinnt þeirri mannréttindabaráttu með stakri prýði enda er hún auðmjúk hugsjónarkona sem lætur verkin tala. Hún er vel máli farin, manneskja orða sinna, einlæg og á auðvelt með að vinna með fjölbreyttum hópi fólks. Hún er lausnamiðuð og leitar ávallt til þeirra sem best þekkja málefnið hverju sinni í þeim tilgangi að leita faglegra lausna og leiða sem skynsamlegastar eru,\" segja stuðningsmenn.