Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, brotnaði niður og gerði stutt hlé á viðtali sínu við Eddu Sif Pálsdóttur, fulltrúa Rúv á HM í Katar í dag þegar talið barst að gagnrýnisröddum í garð Vöndu og KSÍ.
Spjótin beindust að Vöndu og KSÍ á dögunum þegar landsliðskonur gagnrýndi forystu Knattspyrnusambandsins í ljósi þess að Aron Einar Gunnarsson var heiðraður eftir 100. leik sinn fyrir Íslands hönd.
Þá hefur Vanda legið undan gagnrýni fyrir ákvörðun KSÍ að þiggja boð frá Sádi-Arabíu um æfingaleik en Vanda átti erfitt með að ráða við tilfinningarnar þegar
Vanda varð að láta undan tárunum þegar spurt var um gagnrýni landsliðskvenna á KSÍ. Ítarlegt viðtal við Vöndu frá Katar. https://t.co/ebXR1jolpc
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 21, 2022
Dagný Brynjarsdóttir gaf til kynna að hún og Glódís Perla Viggósdóttir væru enn að bíða eftir sinni treyju og í kjölfarið vakti Margrét Lára Viðarsdóttir á því að hún hafi aldrei fengið formlega kveðju frá KSÍ.
Þá sagðist Guðbjörg Gunnarsdóttir enn vera að bíða eftir viðurkenningu fyrir 50. leik sinn líkt og tíðkast hefur. Fréttablaðið greindi frá því að um væri að ræða uppátæki að frumkvæði búningastarfsmanns karlalandsliðsins.