Formaður á bibbanum

Á þeirri virtu útvarpsstöð, Útvarpi Sögu, fer jafnan fram yfirveguð og upplýst umræða um samfélagsmálefni dagsins.


Ekki síst eru málefni útlendinga þar til umfjöllunar.

Í gær var engin undantekning í innhringitíma og að þessu sinni beindist gagnrýni einkum að Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar. Hann þótti almennt of hallur undir málstað hættulegra barna sem flytja hingað frá fjarlægum löndum.

Einn hlustandi var þó öðrum fróðari. Hann benti á að faðir Loga, Einar Helgason, hefði verið skólastjóri myndlistarskóla á Akureyri. Þar hefði sonurinn gerst svo ósmekklegur fyrir nokkrum áratugum að standa allsnakinn fyrir framan myndlistarnema sem reyndu svo að teikna af honum mynd.

Engum sögum fór af listaverkunum, en innhringjandanum þótti eðlilega rétt að vekja athygli þjóðarinnar á siðferði fólks sem vill taka þátt í stjórn landsins.

Útvarpsstöðin gerði engar athugasemdir við þessar áhyggjur hins vel meinandi borgara. Enda ótækt að hafa strípalinga á alþingi. Næg er lausungin samt.