Forláta mercedes bens 300 sel 6,3

Í þættinum Kíkt í skúrinn heimsækir Jóhannes Bachmann m.a. Svein Þorsteinsson eiganda að forláta Mercedes Benz 300 SEL með 6,3 lítra V8 mótor. Bifreiðin var í eigu Geirs Þorsteinssonar forstjóra Ræsis. Einnig heimsækir Jóhannes Gunnar Már Gunnarsson eiganda Jagúar XJS með 6 cyl mótor. Einnig fer Jóhannes að skoða nýjar tegundir af Jaguar bílum og ber saman þann gamla og þann nýja.

Þátturinn Kíkt í skúrinn verður sýndur í vetur öll mánudagskvöld kl. 20.30 og endursýndur kl. 22.30 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut