Forkólfum Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll hefur verið stefnt vegna útboðsins á verslunarrými í flugstöðinni. Drífa ehf., sem selur vörur undir merkjum Icewear, var með lægsta tilboðið í útboðinu en stjórnendur Isavia töldu það vera of gott til að geta staðist. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafa eigendur Drífu ekki fengið neinn rökstuðning fyrir ákvörðuninni. Þeir telja að hafi verið byggð á geðþótta.
Eftir því sem fram kemurn á mbl.is í dag fer Drífa fram á 903 milljónir króna í bætur vegna tekjumissis en fjárhæðin miðast við að gengið hefði verið til samninga við fyrirtækið um tilboð. Þetta er áætlaður hagnaður fyrirtækisins af sölu á fatnaði og minjagripum frá júní 2015 til maí 2019. Vefurinn segir að málið hafi verið tekið fyrir í Hérðsdómi Reyjavíkur en í gær var tekist á um hvort Drífu væri heimilt að fá dómskvaddan matsmann til þess að leggja mat á tjónið. Isavia hefur lagst gegn því, en niðurstaða er ekki komið í atriðið.
Vörur fyrirtækisins hafa verið seldar í flugstöðinni frá árinu 1988 en líkt og aðrir rekstraraðilar í flugstöðinni þurfti Drífa að taka þátt í útboði á verslunarrýminu í upphafi síðasta árs. Forvalið skiptist í tvö stig þar sem á fyrra stiginu var kannað hvort þátttakendur uppfylltu ákveðnar kröfur. Þeim sem uppfylltu þær var síðan boðið að taka þátt í lokuðu útboði þar sem skila þurfti inn tæknilegu og fjárhagslegu tilboði.