Foringjar flokkanna vegnir og metnir

Staða og styrkur helstu stjórnmálaforingja landsins verið vegin og metin í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld, en þar munu Andrés Magnússon, blaðamaður af Viðskiptablaðinu og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans setjast á rökstóla með Sigmundi Erni.

Þremenningarnir munu fjalla um pólitíska líðan foringja Framsólknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Pírata, Samfylkingarinnar, VG og Bjartrar framtíðar svo og ástandið á hverjum þessara flokka, nú þegar örfáar vikur eru til þingkosninga sem margir fréttaskýrendur segja að muni færa þjóðinni óljósari úrslit en löngum fyrr, en erfitt, jafnvel ómöguleegt verði fyrir vikið að mynda starfhæfa ríkisstjórn.

Og það er engin tæpitunga töluð í þætti kvöldsins, þar sem, eðli málsins samkvæmt er farið jafnt í manninn og málefnið.

Ritstjórarnir rifa kjaftinn klukkan 20:30 í kvöld.