Aðsókn að foreldrafundum í skólum hefur minnkað til muna að sögn Geirs Bjarnasonar forvarnarfulltrúa Hafnarfjarðar í þættinum Fólk með Sirrý sem frumsýndur var klukkan 20.00 í kvöld, en þar var rætt um hvernig megi koma í veg fyrir kynferðisofbeldi í garð barna.
Geir hefur áhyggjur af því að erfitt sé að ná til allra foreldra með fræðslu og upplýsingar. "Ríkt og flott samfélag eins og Ísland ætti að vera með skóla fyrir foreldra svo foreldrar fái upplýsingar um kynferðisofbeldi, forvarnir og hvað beri að varast, í stað þess að foreldrar segi löngu seinna; ég vissi ekkert um þetta, eins og allt of margir segja í dag". Og Geir sagði ennfremur í þættinum: "Hægt væri að bjóða upp á skóla fyrir foreldra þegar þeir koma með börn sín í bólusetningar. Um þriggja ára aldur og aftur þegar þau eru fimm ára. Það er lykillinn að næsta skrefi sem við þurfum að taka til að samfélagið allt sé samstíga og virkt í forvörnum," sagði forvarnarfulltrúinn í þættinum.
Hægt er að skoða klippur úr þættinum hér á hringbraut.is, en þættir Sirrýjar, Fólk með Sirrý eru vikulega á dagskrá Hringbrautar klukkan 20.00 á þriðjudagskvöldum.