Félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, og bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, rituðu í gær undir samkomulag um þátttöku bæjarins í tilraunaverkefni á vegum ráðuneytisins um framkvæmd skilnaðarráðgjafar.
Verkefnið er að danskri fyrirmynd, en eftir nýlegar breytingar á dönskum skilnaðarlögum þurfa allir foreldrar, sem sækja um leyfi til skilnaðar að borði og sæng, og eiga saman börn undir 18 ára aldri, að taka námskeið um áhrif skilnaða á börn.
Hafnarfjarðarbær mun því, í samstarfi við ráðuneytið innleiða og þróa nýtt vinnulag sem hefur að markmiði að koma í veg fyrir og/eða draga úr ágreiningi foreldra í skilnaðarferli.
Verkefnið snýr annars vegar að aðgangi foreldra í skilnaðarferli að rafrænu námskeiði og hins vegar að viðtalsráðgjöf sérfræðings fjölskylduþjónustu. Markmið þess er að innleiða og þróa nýtt vinnulag með áherslu á félagslega ráðgjöf í skilnaðarmálum. Ásmundur Einar segir:
„Ég er mjög ánægður með viðbrögð sveitarfélaga við nýkynntu tilraunaverkefni um ráðgjöf við skilnað foreldra, eitthvað sem skiptir miklu máli fyrir þau börn og þær fjölskyldur sem það ganga gegnum. Í verkefninu felast fyrirbyggjandi aðgerðir til hagsbóta fyrir börn og fjölskyldur sem hafa sýnt sig að hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu þeirra og virðist draga úr þeim tíma sem ákveðnir erfiðleikar í kjölfar skilnaða ganga yfir.“
Til að byrja með verður um tilraunaverkefni hérlendis að ræða í samstarfi við nokkur sveitarfélög. Hafnarfjörður er þeirra fyrst til að rita undir formlegt samkomulag. Ef vel tekst til mun svo litið til þess hvernig beri að útfæra verkefnið til framtíðar.