Sex ára stúlka fékk pakka af jólakortum frá foreldrum sínum til að fylla út. Kortin ætlaði hún að senda vinum sínum um síðustu jól en hún uppgötvaði að eitt kortanna hafði verið fyllt út. Skilaboðin voru hrollvekjandi. Sif Sigmarsdóttir, einn allra vinsælasti pistlahöfundur landsins, ber sögu stúlkunnar, sem er bresk og heitir Florence Widdicombe saman við mál sem upp kom nýverið hér á landi. Það gerir hún í pistli í Fréttablaðinu. Kortin hafði fjölskyldan keypt í Tesco. Eins og áður segir varð barnið hissa þegar það sá að búið var að skrifa á eitt kortið. Þar voru skilaboð frá fanga í kínverskum þrælkunarbúðum. Þar stóð:
„Við erum erlendir fangar í Qingpu-fangelsinu í Shanghai í Kína. Við erum þvingaðir í þrældóm. Gerðu það hjálpaðu okkur og láttu mannréttindasamtök vita. Hafðu upp á hr. Peter Humphrey.“
Eftir að hafa kannað málið kom í ljós að stjórnvöld í Kína höfðu þvingað fangana til að vinna vörur fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Við þetta höfðu aðstæður fanganna versnað mikið.
Sif vitnar svo í frétt Fréttablaðsins frá því á þriðjudag en þar var fjallað um Radenko Stanisic sem er frá Bosníu. Hann ætlar í mál gegn fasteignafélaginu H-26 á Akureyri vegna vangoldinna launa. Þá varð hann fyrir líkamsstjóni þegar hann féll og slasaðist eftir að hafa verið að festa handrið á svalir. Eftir að hafa farið í aðgerð ók verkstjóri hans honum suður á Keflavíkurflugvöll þar sem hann var sendur með flugvél úr landi
Fyrir sjö vikur í starfi, tíu tíma á dag, sex daga vikunnar fékk hann greiddar 165 þúsund krónur. Hann er enn þá óvinnufær. Fasteignafélagið hafnar öllum bótakröfum og greiðslum vegna vangoldinna launa. Reynir fyrirtækið að þvo hendur sínar með því að halda fram að hann hafi verið starfsmaður undirverktaka í Serbíu og öryggismál skrifist líka á þá.
Sif segir að hvort sem fyrirtækið H-26 beri lagalega ábyrgð þá liggi siðferðisleg ábyrgð í augum uppi.
„Viðbrögð forsvarsmanna H-26 eru landi og þjóð til skammar. Er það svona lítils sem við metum líf farandverkafólks sem hér starfar – við látum eins og það komi okkur ekki við?“
Hér má lesa pistilinn í heild sinni.