Allt sem þú vilt vita um flóttamenn en þorir ekki að spyrja um - var yfirskrift þáttarins Fólk með Sirrý í gærkvöld, en þar var ýmsum spurningum frá áhorfendum svarað af þeim sem helst og best þekkja til málaflokksins.
Gestir þáttarins voru Þórir Guðmundsson og Anna Lára Steindal frá Rauða krossinum og Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi - og ræddu þau málin á yfirvegaðan og upplýstan máta.
Fordómar í garð útlendinga hafa aukist mikið á undanförnum árum að sögn Salmanns Tamimi sem kom hingað til lands frá 45 árum. Hann fékk vinnu, fór á sjóinn og fann ekki fyrir andúð í garð útlendinga. Annað er uppi á teningnum í dag: \"Ég hef borgað mína skatta til samfélagsins í 45 ár\" sagði Salmann þegar rætt var um hvort íslenskt samfélag hefði efni á því að taka á móti flóttafólki.
Margskonar vanþekking var rædd í þættinum og segir Salmann: \"Ég ber ekki konuna mína 5 sinnum á dag en ég bið 5 sinnum á dag.\"
Sjá má þáttinn hér á hringbraut.is eins og alla aðra þætti sjónvarpsstöðvarinnar.