Fordæmir siðareglur rúv


IMMI, alþjóðleg stofnun um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, leggst eindregið gegn heftingu tjáningarfrelsis starfsmanna RÚV sem nýjar siðareglur RÚV kveða á um.
Í nýju siðareglunum segir m.a.: \"Starfsfólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, fréttatengt efni og dagskrárgerð tekur ekki opinberlega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélagsumræðunni, þ.á.m. á samfélagsmiðlum.”
Framkvæmdastjóri IMMI segir: \"Hér er stjórnarskrárvarinn réttur til frjálsrar tjáningar virtur að vettugi en 73. gr. stjórnarskrá Íslands er eftirfarandi:
\"Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.
Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum\".
Í ályktun IMMI segir: \"Það er grafalvarlegt að ætla að hefta skoðana- og tjáningarfrelsi starfsmanna RÚV. Hér er um aðför að persónufrelsi að ræða þar sem einstaklingum er gert að hafa skoðanir sínar í hljóði til þess að mega sinna störfum sínum fyrir ríkisfjölmiðil. Vitanlega á að krefjast fagmennsku í fréttaflutningi og hlutleysis er gætt með því að ólík sjónarmið fái að heyrast. En að hefta lögbundin borgaraleg réttindi einstaklinga með þessum hætti og krefjast þess að einstaklingar sitji á skoðunum sínum og sjálfsritskoði skrif sín og samskipti er í besta falli óboðlegt, í versta falli þöggun.\"
IMMI stofnunin hvetur til endurskoðunar þessara siðareglna undir eins til að stöðva sem fyrst kælingaráhrif þessara reglna á tjáningarfrelsi.

Fyrr í dag fjallaði Hringbraut um gagnrýni sem komið hefur úr fleiri áttum á siðareglur starfsmanna Rúv.