Fordæmalaus misbeiting valds!

 

 

„Ég hef oft sagt að tjónið sem af þessu hefur hlotist er gríðarlegt. Mér er ekki efst í huga fjárhagslegt tjón heldur hvernig þessar skipulögðu ofsóknir hafa spillt orðspori okkar um allan heim.“

Svo segir í löngu bréfi sem Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, ritar starfsmönnum sínum og birtir opinberlega á heimasíðu Samherja. Ástæða skrifanna er að mál Seðlabankans á hendur stjórnendum Samherja hefur verið fellt niður. Þorsteinn Már rekur hvernig ekkert hafi gengið að fá rökstuðning með kæru á hendur Samherja frá Seðlabankanum. Hann telur einnig að vinnubrögðum sérstaks saksóknara hafi verið mjög ábótavant. Hann hefur áður sagt eins og Hringbraut fjallaði um að illvilji Seðlabankans væri einn að vopni.

„Sem dæmi um offorsið sat ég í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara vegna kæru Seðlabankans þar sem ég var ásakaður um alvarlegt og gróft brot yfir langt tímabil sem fólst í að selja samtals 5 tonn af bleikju á 39 mánaða tímabili, á verði sem var tveimur milljónum króna of lágt að mati Seðlabankans. Þegar ég bað um gögn til rökstuðnings kæru Seðlabankans um verð annarra útflytjenda á bleikju til Þýskalands kom í ljós að engin slík gögn voru til þar sem enginn annar seldi bleikju til Þýskalands á sama tímabili. Þess í stað sýndi starfsmaður sérstaks saksóknara mér skýrslu Seðlabankans þar sem bankinn bar saman verð á bleikju, sem við seldum til Finnlands, við 5 tonnin sem seld voru til Þýskalands. Til að fá sem neikvæðasta niðurstöðu úr þessum samanburði varð Seðlabankinn að horfa framhjá gjörólíkum afhendingarskilmálum og mismunandi markaðsaðstæðum. Í öðru tilfellinu var búið að byggja upp markað og í hinu tilfellinu var verið að reyna að búa til nýjan markað. Yfirheyrslan fór fram tæpum tveimur árum eftir að stofnað var til málsins og nokkrum mánuðum eftir að seðlabankastjóri tilkynnti mér í gegnum hádegisfréttir fjölmiðils að hann hefði kært mig til sérstaks saksóknara.“

Niðurstaða forstjóra Samherja er að átt hafi sér stað „fordæmalaus misbeiting valds“. „Mitt mat er að innrás Seðlabankans og sú atburðarás sem fylgdi í kjölfarið sé fordæmalaus misbeiting á valdi sem gerð var á skipulegan hátt til að valda sem mestu tjóni.“ Hann segir einnig: „Löngu tímabært er að æðsta stjórn bankans axli ábyrgð með því að grípa inn í og stöðva þessa misbeitingu valds og kalli menn til ábyrgðar til að tryggja að svona lagað endurtaki sig ekki. Ég hyggst senda bankaráði opið bréf þess efnis á næstu dögum,“ skrifar forstjóri Samherja.