Stjórn þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir atburðina í Palestínu á liðnum dögum og vikum, segir í nýrri tilkynningu þingflokksins. Í henni stendur að flokkurinn fordæmi framferði ísraelskra hermanna sem hafi myrt fjölda mótmælenda með köldu blóði.
„Þessi grimmilegu viðbrögð Ísraelsstjórnar við fyrirsjáanlegum mótmælum vegna vanhugsaðrar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að flytja sendiráð sitt til Jerúsalem eru ólíðandi, en íslensk stjórnvöld vöruðu einmitt við þeirri ákvörðun“, segja VG liðar á þingi enn fremur.
„Minnt er á mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðalög og að ekki sé brotið á mannréttindum íbúa svæðisins”.
Stjórn þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs minnir einnig á samþykkt Alþingis Íslendinga frá 2011 um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.