Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heldur til Bretlands á morgun og flytur fyrirlestra við þrjá háskóla í þeirra boði. Frá þessu er greint í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.
Á morgun flytur forseti erindi og tekur þátt í umræðum í Oxford Union. Forseti mun jafnframt hitta íslenska námsmenn í Oxford og eiga fund með kennurum á sviði norrænna miðaldabókmennta.
Daginn eftir heldur forsetir til Loughborough University, sem valinn var háskóli ársins í Bretlandi, og heldur fyrirlestur við íþróttadeild háskólans. Fyrirlesturinn be heitið „Never wake me up from this dream.“ Icelandʼs success in sports and its implications for national self-perception. Forseti mun jafnframt eiga fund með rektor háskólans og kynna sér starfsemi skólans.
Nánar á
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/01/29/forseti_flytur_fyrlestra_vid_breska_haskola/