Fór ofan í dimmasta dalinn

Hann kveðst hafa sokkið ofan í dimmasta dalinn þegar fyrir lá að hann yrði skorinn upp vegna krabbameins í blöðruhálskirtli fyrir fimm árum. Fyrir honum var karlmennskan á bak og burt - og þunglyndið ef til vill komið til að vera.

Athafnamaðurinn Jóhannes Valgeir Reynisson var gestur Sigmundar Ernis Rúnarssonar í þættinum Örlögin á Hringbraut í gærkvöld, en þar rak hann lífsreynslusögu sína af miklu hispursleysi.

Jóhannes hefur mætt margvíslegum andbyr um sína daga, sonur hans fæddist með taugahrörnunarsjúkdóm, sjálfur greindist hann með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir hálfum áratug og á síðasta ári mátti engu muna að hann kveddi lífið eftir hastarlegt hjartaáfall.

Hann er stundum kallaður Blái naglinn eins og baráttufélag hans er kallað, en eftir að hafa greinst með krabbameinið í blöðruhálskirtli hefur hann lagt þungt lóð á vogarskálarnar í baráttunni fyrir frekari rannsóknum og umræðu um krabbamein í körlum sem oft og tíðum hefur verið þeim mikið feimnismál sem þeir kæra sér mun síður að tala um en konur.

Örlögin verða endursýnd í dag og um næstu helgi.