Fór í klaustur í leit að sjálfum sér

Einstök saga Guðmundar Inga Guðbrandssonar, nýs umhverfis- og auðlindamálaráðherra landsmanna er sögð í Mannamáli þessa vikuna, en óhætt er að segja að þar komi hann til dyranna eins og hann er klæddur; hispurslaus, einlægur og ástríðufullur.

Hann er annað tveggja barna foreldra sinna á bænum Brúarlandi á Mýrum sem á æskuárum Mumma, eins og strákurinn var kallaður heima í sveitinni, lá í alfaraleið, enda þjóðvegurinn á bæjarhlaðinu með bensínsstöð í kantinum, sem þótti nú ekki ónýtt í þá dagana.

Og hann fór óvenjulegar leiðir, strax á unglingsaldri, vildi ekki fara til mennta í Reykjavík, heldur þráði hann slá tvær flugur í einu höggi; komast í almennilegan skóla og halda lengra frá heimaslóðum en sem næmi höfuðborginni í suðri. Eftir dásamleg ár í MA skellti hann sér í húsmæðranám í Reykjavík, hvattur mjög af vefnaðarkonunni mömmu sinni, en þess utan kunni hann ekkert til verka í þessum efnum og vildi gera þar bragarbót. Og hafi Húsmæðraskólinn ekki verið svolítið sérstakt val fyrir tvítugan strák á þessum árum þá var kannski ennþá skrýtnara að hann skildi þvínæst skella sér í klaustur í Þýskalandi; hann vildi finna sjálfan sig, átta sig betur á því hver Mummi á Brúarlandi væri í raun og sann - og þar hófst leitin að Guðmundi Inga Guðbrandssyni.

Hann kom seint út úr skápnum, 27 ára að aldri, kannski aðallega vegna þess að fyrirmyndirnar skorti, bæði heima í sveitinni og norður í landi, en eftir margra ára sambúð með kærustu sinni áttaði hann sig loksins á kynhneigð sinni - og hann er sko sannarlega sáttur í dag.

Hann talar af ástríðu um umhverfismálin en kveðst miklu fremur vera praktískur í þeim málaflokki fremur en nokkru sinni öfgafullur því aðalatriði sé í þessum efnum að bæta sambúð manns og náttúru svo fólki og umhverfi líði sem best. Og hann hlakkar til komandi verka, finnur til ábyrgðarinnar en þó ekki síður áskorunarinnar að standa sig í stórum og viðamiklum málaflokki.

Mannamál er endursýnt á Hringbraut í dag, en frumsýnt alla jafna á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30 í kvöld. Einnig er hægt að nálgast þáttinn á hringbraut.is