Fór í göngutúr með barnið og fann torkennilegt efni í miðbæ ísafjarðar

„Á nýársdag fann gangandi vegfarandi torkennilegt efni á götunni í miðbæ Ísafjarðar. Þessi samviskusami borgari sem var í göngutúr með barnið sitt er hann fann poka með efnunum, tilkynnti fundinn til lögreglu og afhenti þeim efnin. Talið er að um kannabisefni sé að ræða.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Þar er einnig greint frá því að síðastliðinn laugardag var ekið utan í brú við Ketilseyri í Dýrafirði. Að sögn ökumanns var hann á leið frá Þingeyri til Ísafjarðar við Skutulsfjörð við krefjandi aðstæður til aksturs vegna skafrennings og ofankomu. Tjón varð á bifreiðinni en ökumaður sem var einn á ferð slasaðist ekki.

Þann sama dag fauk bifreið utan vegar við Flateyrarveg. Veður var frekar slæmt, dimm él og mikill vindur. Skyndilega kom sterk vindhviða á bifreiðina með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar. Mikil hálka var á akbrautinni er þetta gerðist. Sá sem var undir stýri kvaðst finna fyrir lítils háttar eymslum. Einn var einn á ferð ásamt hundi. Ekki kemur fram hvort hundurinn hafi slasast við höggið.

Tilkynnt var um þjófnað á sex gaskútum sem voru í læstum stálkassa utan við verslunina Hólabúð, Reykhólum. Stálkassinn mun hafa verið læstur með hengilás. Þá var einnig búið að strengja strekkibönd utan um kassann til að varna foki.

Ekki er vitað hvenær stuldurinn varð en upp komst um atvikið á laugardag. Búið var að skera á strekkiböndin og klippa á lásinn til að komast að kútunum. Málið er óleyst.